18.000 kr.

Þrautreyndar stjórnunaraðferðir

Námskeið fyrir stjórnendur

6 klst. að lengd. Hægt er að skipta því í tvo hluta.

Námskeiðslýsing

Stjórnun starfsmanna er einn veigamesti þátturinn í árangri vinnustaðarins. Vægi stjórnunar er að aukast og áskoranir stjórnenda eru margar. 

Fjöldi kenninga er til um áhrifaríka stjórnun. Ein lífseigasta þeirra er kenningin um aðstæðubundna stjórnun eftir Hersey & Blanchard frá árinu 1969 en hún er notuð í stjórnendaþjálfun um allan heim. Styrkleiki kenningarinnar liggur í einfaldleikanum og áherslunni sem lögð er á hlutverk náms. Samkvæmt kenningunni hafa aðstæður stjórnanda og starfsmanns áhrif á hvaða stjórnunarstíl sé best að beita. Stundum þarf að taka fast í taumana, stundum fær starfsmaður lausan tauminn og í önnur skipti er nóg að ræða málin. Allt ræðst þetta af aðstæðunum hverju sinni og því verður stjórnandi að vera vakandi fyrir því hversu mikið hann skiptir sér af starfsmanninum.

Á námskeiðinu er fjallað um hlutverk og ábyrgð stjórnandans. Þátttakendur svara spurningalista sem segir til um stjórnunarstíl þeirra. Farið er í hlutverkaþjálfun þar sem mismunandi stjórnunarstílar eru æfðir eins og að beita mikilli stýringu, ráðgefandi stjórnunarstíl og felandi stjórnunarstíl (e. delegation). Stuðst er við dæmi sem þátttakendur eru að glíma við í daglegu starfi.
 
Námskeiðið hentar öllum þeim stjórnendum sem vilja styrkja sig í starfi og taka þátt í uppbyggilegri umræðu um hlutverk stjórnenda.

Leiðbeinandi

Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Stjórnunarstílar og hlutverk stjórnandans.
  • Hvatning og starfsánægja.
  • Stjórnandinn sem fyrirmynd.
  • Frammistöðusamtöl og að veita endurgjöf á frammistöðu.

Ávinningur

  • Innsýn í eigin stjórnunarstíl.
  • Þekking á góðri hagnýtri kenningu til að lesa í aðstæður.
  • Færni í að beita mismunandi stjórnunarstílum.
  • Betri samtalstækni og lipurð og öryggi í samskiptum.

Kennsluaðferðir

  • Verkefni.
  • Fyrirlestrar.
  • Hæfnisþjálfun.
  • Umræður.
Þrautreyndar stjórnunaraðferðir Námskeið fyrir stjórnendur 6 klst. að lengd. Hægt er að skipta því í tvo hluta. Námskeiðslýsing Stjórnun starfsmanna er einn veigamesti þátturinn í árangri vinnustaðarins. Vægi stjórnunar er að aukast og áskoranir stjórnenda eru margar.  Fjöldi kenninga er til um áhrifaríka stjórnun. Ein lífseigasta þeirra er kenningin um aðstæðubundna stjórnun eftir Hersey & Blanchard frá árinu 1969 en hún er notuð í stjórnendaþjálfun um allan heim. Styrkleiki kenningarinnar liggur í einfaldleikanum og áherslunni sem lögð er á hlutverk náms. Samkvæmt kenningunni hafa aðstæður stjórnanda og starfsmanns áhrif á hvaða stjórnunarstíl sé best að beita. Stundum þarf að taka fast í taumana, stundum fær starfsmaður lausan tauminn og í önnur skipti er nóg að ræða málin. Allt ræðst þetta af aðstæðunum hverju sinni og því verður stjórnandi að vera vakandi fyrir því hversu mikið hann skiptir sér af starfsmanninum. Á námskeiðinu er fjallað um hlutverk og ábyrgð stjórnandans. Þátttakendur svara spurningalista sem segir til um stjórnunarstíl þeirra. Farið er í hlutverkaþjálfun þar sem mismunandi stjórnunarstílar eru æfðir eins og að beita mikilli stýringu, ráðgefandi stjórnunarstíl og felandi stjórnunarstíl (e. delegation). Stuðst er við dæmi sem þátttakendur eru að glíma við í daglegu starfi. Námskeiðið hentar öllum þeim stjórnendum sem vilja styrkja sig í starfi og taka þátt í uppbyggilegri umræðu um hlutverk stjórnenda. Leiðbeinandi Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf. Meðal þess sem er tekið fyrir: Stjórnunarstílar og hlutverk stjórnandans. Hvatning og starfsánægja. Stjórnandinn sem fyrirmynd. Frammistöðusamtöl og að veita endurgjöf á frammistöðu. Ávinningur Innsýn í eigin stjórnunarstíl. Þekking á góðri hagnýtri kenningu til að lesa í aðstæður. Færni í að beita mismunandi stjórnunarstílum. Betri samtalstækni og lipurð og öryggi í samskiptum. Kennsluaðferðir Verkefni. Fyrirlestrar. Hæfnisþjálfun. Umræður.
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram