90 kr.

Er gaman í vinnunni?

Námskeið fyrir vinnustaðinn

Lengd:

3 klst.

Námskeiðslýsing

Við eigum öll okkar myndrænu, ósýnilegu fötu sem við tökum með okkur hvert sem við förum. Í fötunni geymum við tilfinningar okkar. Fatan fyllist af jákvæðum samskiptum eins og klappi á bakið eða fallegum orðum í okkar garð en hún tæmist af neikvæðum samskiptum eins og t.d. nöldri eða gagnrýni annarra. Okkur líður frábærlega þegar fatan okkar er full, og hörmulega þegar hún er tóm. Því meira sem er í fötunni okkar, því auðveldara verður að deila umfram magninu með öðrum. 

Á námskeiðinu er farið í leiðir til að fylla fötuna og auka gleði, jákvæðni og orku á vinnustað. Byggt er m.a. á bókunum How full is your bucket? og Fish! A Remarkable Way to Boost Morale and Improve Results.

Vegna eðlis námskeiðsins er það eingöngu í boði fyrir vinnustaði, þ.e. ekki er hægt að skrá einstaklinga heldur eingöngu hópa sem þekkjast og vinna saman.

Eftirfarandi vinnuaðferðir eru notaðar:

  • Fyrirlestur um samskipti, viðhorf og jákvæðni.
  • Virk þátttaka allra þátttakenda.
  • Umræður í litlum hópum til að tryggja þátttöku og skoðanaskipti.
  • Jákvætt andrúmsloft.

Ávinningur

  • Líflegri og skemmtilegri vinnustaður.
  • Betri og árangursríkari samskipti.
  • Meiri starfsánægja og vellíðan á vinnustað.
  • Meiri framleiðni og árangur.

Leiðbeinandi

Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
Er gaman í vinnunni? Námskeið fyrir vinnustaðinn Lengd: 3 klst. Námskeiðslýsing Við eigum öll okkar myndrænu, ósýnilegu fötu sem við tökum með okkur hvert sem við förum. Í fötunni geymum við tilfinningar okkar. Fatan fyllist af jákvæðum samskiptum eins og klappi á bakið eða fallegum orðum í okkar garð en hún tæmist af neikvæðum samskiptum eins og t.d. nöldri eða gagnrýni annarra. Okkur líður frábærlega þegar fatan okkar er full, og hörmulega þegar hún er tóm. Því meira sem er í fötunni okkar, því auðveldara verður að deila umfram magninu með öðrum.  Á námskeiðinu er farið í leiðir til að fylla fötuna og auka gleði, jákvæðni og orku á vinnustað. Byggt er m.a. á bókunum How full is your bucket? og Fish! A Remarkable Way to Boost Morale and Improve Results. Vegna eðlis námskeiðsins er það eingöngu í boði fyrir vinnustaði, þ.e. ekki er hægt að skrá einstaklinga heldur eingöngu hópa sem þekkjast og vinna saman. Eftirfarandi vinnuaðferðir eru notaðar: Fyrirlestur um samskipti, viðhorf og jákvæðni. Virk þátttaka allra þátttakenda. Umræður í litlum hópum til að tryggja þátttöku og skoðanaskipti. Jákvætt andrúmsloft. Ávinningur Líflegri og skemmtilegri vinnustaður. Betri og árangursríkari samskipti. Meiri starfsánægja og vellíðan á vinnustað. Meiri framleiðni og árangur. Leiðbeinandi Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram