18.000 kr.

Árangur í mikilvægum samtölum

Námskeið fyrir stjórnendur

Lengd:

6 klst. Hægt er að skipta því í tvo hluta.

Námskeiðslýsing

Í stórri rannsókn sem fjallað er um í bókinni Crucial Conversations eftir Kerry Patterson, Josep Grenny, Ron McMillan og Al Switzler sem gerð var á vinnustöðum þar sem fólk var beðið að nefna þá sem eru virkilega góðir í samskiptum kom fram að þeir bestu höndla erfiðar aðstæður mjög vel þ.e. þegar skoðanir eru ólíkar, mikið er í húfi og tilfinningar miklar. Þannig aðstæður draga oft fram það versta hjá fólki sem birtist t.d. í því að það verður reitt, sárt, tortryggið og reynir jafnvel að koma sér undan samtalinu eða ná sér niður á viðmælandanum.  

Rannsóknir sýna að nokkur atriði greina þá bestu frá hinum. Þeir bestu hafa skýrari sýn á útkomuna úr samtalinu fyrir sjálfan sig, viðmælandann og samskiptin. Þeir skapa traust í upphafi samtals, eru læsir á eigin viðbrögð og viðmælenda sinna og grípa tímanlega inn í áður en samtalið afvegaleiðist. Þeir nýta sér uppbyggilegar aðferðir til að hvetja til umræðu og koma fram með eigin skoðanir á réttum tíma. Þeir nota virka hlustun til að tryggja réttan skilning og leggja áherslu á að ákvarðanir séu teknar með viðeigandi aðferðum og í sátt viðmælenda. 

Á námskeiðinu er farið yfir þessa færniþætti og þeir þjálfaðir með hlutverkaæfingum.
 
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja ná meiri árangri í samtölum þar sem skoðanir eru ólíkar, hagsmunir miklir og tilfinningar geta hlaupið upp, þ.m.t. stjórnendum, sérfræðingum, fagfólki, ráðgjöfum, sölumönnum, fjölmiðlafólki, sálfræðingum, læknum, kennurum og foreldrum.

Leiðbeinandi

Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Að byggja upp traust
  • Að tryggja réttan skilning og fyrirbyggja misskilning
  • Að lesa í vísbendingar í samtölum
  • Að eiga við eigin tilfinningar og viðmælenda
  • Að fá viðmælanda til að tjá sig
  • Að spyrja réttra spurninga 
  • Að orða hluti á viðeigandi hátt
  • Að ljúka samtali

Ávinningur

  • Faglegri vinnubrögð
  • Meiri árangur í samskiptum
  • Betra læsi á árangur í samtölum
  • Betri samskipta- og samtalstækni
  • Ánægjulegri samskipti
  • Meira öryggi í viðtölum

Kennsluaðferðir

  • Fyrirlestur
  • Æfingar
  • Umræður
Árangur í mikilvægum samtölum Námskeið fyrir stjórnendur Lengd: 6 klst. Hægt er að skipta því í tvo hluta. Námskeiðslýsing Í stórri rannsókn sem fjallað er um í bókinni Crucial Conversations eftir Kerry Patterson, Josep Grenny, Ron McMillan og Al Switzler sem gerð var á vinnustöðum þar sem fólk var beðið að nefna þá sem eru virkilega góðir í samskiptum kom fram að þeir bestu höndla erfiðar aðstæður mjög vel þ.e. þegar skoðanir eru ólíkar, mikið er í húfi og tilfinningar miklar. Þannig aðstæður draga oft fram það versta hjá fólki sem birtist t.d. í því að það verður reitt, sárt, tortryggið og reynir jafnvel að koma sér undan samtalinu eða ná sér niður á viðmælandanum.   Rannsóknir sýna að nokkur atriði greina þá bestu frá hinum. Þeir bestu hafa skýrari sýn á útkomuna úr samtalinu fyrir sjálfan sig, viðmælandann og samskiptin. Þeir skapa traust í upphafi samtals, eru læsir á eigin viðbrögð og viðmælenda sinna og grípa tímanlega inn í áður en samtalið afvegaleiðist. Þeir nýta sér uppbyggilegar aðferðir til að hvetja til umræðu og koma fram með eigin skoðanir á réttum tíma. Þeir nota virka hlustun til að tryggja réttan skilning og leggja áherslu á að ákvarðanir séu teknar með viðeigandi aðferðum og í sátt viðmælenda.  Á námskeiðinu er farið yfir þessa færniþætti og þeir þjálfaðir með hlutverkaæfingum.   Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja ná meiri árangri í samtölum þar sem skoðanir eru ólíkar, hagsmunir miklir og tilfinningar geta hlaupið upp, þ.m.t. stjórnendum, sérfræðingum, fagfólki, ráðgjöfum, sölumönnum, fjölmiðlafólki, sálfræðingum, læknum, kennurum og foreldrum. Leiðbeinandi Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf. Meðal þess sem er tekið fyrir: Að byggja upp traust Að tryggja réttan skilning og fyrirbyggja misskilning Að lesa í vísbendingar í samtölum Að eiga við eigin tilfinningar og viðmælenda Að fá viðmælanda til að tjá sig Að spyrja réttra spurninga  Að orða hluti á viðeigandi hátt Að ljúka samtali Ávinningur Faglegri vinnubrögð Meiri árangur í samskiptum Betra læsi á árangur í samtölum Betri samskipta- og samtalstækni Ánægjulegri samskipti Meira öryggi í viðtölum Kennsluaðferðir Fyrirlestur Æfingar Umræður
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram