18.000 kr.

Að stjórna jafningjum

Námskeið fyrir stjórnendur

6 klst. að lengd. Hægt er að skipta því í tvo hluta.

Námskeiðslýsing

Það er krefjandi hlutverk að vera stjórnandi meðal jafningja. Það að koma nýr inn í hóp eða hafa verið einn af hópnum og taka síðan að sér forystuhlutverkið kallar eðlilega á ákveðna afstöðu og hegðun sem verður að vera til staðar eigi árangur að nást.  

Það að vera sjálfur fyrirmynd sem stjórnandi er eitt það mikilvægasta fyrir jafningjastjórnanda ásamt því að vera gegnheill og traustur. Sá sem fer fyrir jafningjum verður að sýna þá hegðun sem hann ætlar öðrum. Stjórnandi jafningja verður að hafa virðingu hópsins því á því hvílir hans árangur. Samtalstækni er ein af mikilvægari undirstöðunum því málin eru rædd á jafningjagrunni og ákvarðanir oft teknar sameiginlega en stjórnandinn ber ábyrgð á gæðum ákvarðana. 

Hjá öllum jafningjastjórnendum takast á nokkur þekkt málefni eins og það að segja öðrum fyrir verkum og að taka á viðkvæmum málum. Einnig að gleyma ekki að nefna það sem vel er gert.

Á námskeiðinu er farið yfir þau atriði sem stjórnendur jafningja upplifa sem erfið og óþægileg og rætt hvernig best er að snúa sér í þeim málum. Farið er ofan í saumana á ólíkum stjórnendahlutverkum og fjallað um aðferðir sem gagnast jafningjastjórnendum og þær æfðar. 

Um er að ræða hagnýtt og lifandi námskeið (vinnustofu) sem hefur það að markmiði að efla stjórnendur sem stjórna jafningjum eða koma til með að stjórna jafningjum. 

Leiðbeinandi

Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Mismunandi stjórnunaraðferðir.
  • Jafningjastjórnandinn sem fyrirmynd, undirmaður og yfirmaður.
  • Að taka á frammistöðumálum á uppbyggilegan og skýran hátt.
  • Það að ræða mál sem jafningi.

Ávinningur

  • Meira sjálfstraust og öryggi í stjórnun.
  • Þekking á aðferðum til að ræða viðkvæm mál.
  • Skilningur á þeim kröfum og væntingum sem gerðar eru.
  • Þekking á helstu mistökum sem jafningjastjórnendur gera.

Kennsluaðferðir

  • Fyrirlestrar.
  • Hæfnisþjálfun.
  • Virk þátttaka.
  • Umræður.
Að stjórna jafningjum Námskeið fyrir stjórnendur 6 klst. að lengd. Hægt er að skipta því í tvo hluta. Námskeiðslýsing Það er krefjandi hlutverk að vera stjórnandi meðal jafningja. Það að koma nýr inn í hóp eða hafa verið einn af hópnum og taka síðan að sér forystuhlutverkið kallar eðlilega á ákveðna afstöðu og hegðun sem verður að vera til staðar eigi árangur að nást.   Það að vera sjálfur fyrirmynd sem stjórnandi er eitt það mikilvægasta fyrir jafningjastjórnanda ásamt því að vera gegnheill og traustur. Sá sem fer fyrir jafningjum verður að sýna þá hegðun sem hann ætlar öðrum. Stjórnandi jafningja verður að hafa virðingu hópsins því á því hvílir hans árangur. Samtalstækni er ein af mikilvægari undirstöðunum því málin eru rædd á jafningjagrunni og ákvarðanir oft teknar sameiginlega en stjórnandinn ber ábyrgð á gæðum ákvarðana.  Hjá öllum jafningjastjórnendum takast á nokkur þekkt málefni eins og það að segja öðrum fyrir verkum og að taka á viðkvæmum málum. Einnig að gleyma ekki að nefna það sem vel er gert. Á námskeiðinu er farið yfir þau atriði sem stjórnendur jafningja upplifa sem erfið og óþægileg og rætt hvernig best er að snúa sér í þeim málum. Farið er ofan í saumana á ólíkum stjórnendahlutverkum og fjallað um aðferðir sem gagnast jafningjastjórnendum og þær æfðar.  Um er að ræða hagnýtt og lifandi námskeið (vinnustofu) sem hefur það að markmiði að efla stjórnendur sem stjórna jafningjum eða koma til með að stjórna jafningjum.  Leiðbeinandi Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf. Meðal þess sem er tekið fyrir: Mismunandi stjórnunaraðferðir. Jafningjastjórnandinn sem fyrirmynd, undirmaður og yfirmaður. Að taka á frammistöðumálum á uppbyggilegan og skýran hátt. Það að ræða mál sem jafningi. Ávinningur Meira sjálfstraust og öryggi í stjórnun. Þekking á aðferðum til að ræða viðkvæm mál. Skilningur á þeim kröfum og væntingum sem gerðar eru. Þekking á helstu mistökum sem jafningjastjórnendur gera. Kennsluaðferðir Fyrirlestrar. Hæfnisþjálfun. Virk þátttaka. Umræður.
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram