18.000 kr.

Fjölmenning á vinnustað

Námskeið fyrir stjórnendur

Lengd:

3 klst. 

Námskeiðslýsing

Samskipti geta verið flókin en þegar við bætast hindranir eins og tungumálaörðugleikar eða annars konar skilningur á eðli hlutanna vegna ólíkrar menningar, uppruna, menntunar og viðhorfa vandast oft málið. Á Íslandi eru töluð u.þ.b. 65 tungumál nú um stundir og samfélag okkar hefur tekið algjörum stakkaskiptum. Ásýnd landsins hefur breyst og meiri fjölbreytni ríkir nú en áður í menningarlegu tilliti. Margt fólk hefur sótt hingað til lands í leit að atvinnu og tækifærum alls staðar að úr heiminum. Flestir koma frá Austur-Evrópu og Asíu en auk þess er hér mikill fjöldi fólks frá hinum Norðurlöndunum, öðrum Evrópulöndum og Suður-Ameríku.
 

Íslendingar hafa hingað til átt gott með að eiga samskipti við aðrar þjóðir og þótt samskiptin taki á sig aðra mynd þegar fólk af öðru þjóðerni tekur sig upp og flytur hingað, ýmist tímabundið eða til frambúðar, verða líka árekstrar og ýmsir sjá fyrir sér vandamál og erfiðleika á meðan aðrir sjá tækifæri og fjölbreytileika sem auðga mannlífið.

Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja bæta samskiptin og öðlast betra sjálfsöryggi á fjölmenningarlegum vinnustað.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Fordómar gagnvart Íslendingum og útlendingum
  • Árekstrar sem rekja má til viðhorfa
  • Hvað er líkt og ólíkt með menningarheimum?
  • Menningarvíddir Geert Hofstede

Ávinningur

  • Jákvæðari samskipti
  • Aukinn skilningur
  • Meiri samheldni
  • Meiri vellíðan á vinnustað

Leiðbeinandi

Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
Fjölmenning á vinnustað Námskeið fyrir stjórnendur Lengd: 3 klst.  Námskeiðslýsing Samskipti geta verið flókin en þegar við bætast hindranir eins og tungumálaörðugleikar eða annars konar skilningur á eðli hlutanna vegna ólíkrar menningar, uppruna, menntunar og viðhorfa vandast oft málið. Á Íslandi eru töluð u.þ.b. 65 tungumál nú um stundir og samfélag okkar hefur tekið algjörum stakkaskiptum. Ásýnd landsins hefur breyst og meiri fjölbreytni ríkir nú en áður í menningarlegu tilliti. Margt fólk hefur sótt hingað til lands í leit að atvinnu og tækifærum alls staðar að úr heiminum. Flestir koma frá Austur-Evrópu og Asíu en auk þess er hér mikill fjöldi fólks frá hinum Norðurlöndunum, öðrum Evrópulöndum og Suður-Ameríku.   Íslendingar hafa hingað til átt gott með að eiga samskipti við aðrar þjóðir og þótt samskiptin taki á sig aðra mynd þegar fólk af öðru þjóðerni tekur sig upp og flytur hingað, ýmist tímabundið eða til frambúðar, verða líka árekstrar og ýmsir sjá fyrir sér vandamál og erfiðleika á meðan aðrir sjá tækifæri og fjölbreytileika sem auðga mannlífið. Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja bæta samskiptin og öðlast betra sjálfsöryggi á fjölmenningarlegum vinnustað. Meðal þess sem er tekið fyrir: Fordómar gagnvart Íslendingum og útlendingum Árekstrar sem rekja má til viðhorfa Hvað er líkt og ólíkt með menningarheimum? Menningarvíddir Geert Hofstede Ávinningur Jákvæðari samskipti Aukinn skilningur Meiri samheldni Meiri vellíðan á vinnustað Leiðbeinandi Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram