90 kr.

Að koma fram af sjálfsöryggi

Námskeið sem henta öllum

Lengd:

6 klst.

Námskeiðslýsing

Þegar fólk er beðið um að nefna þau atriði sem það kvíði mest fyrir setur fjörutíu og eitt prósent það að koma fram fyrir framan hóp af fólki í fyrsta sæti, á undan kjarnorkustríði og gjaldþroti! Stór hluti fólks myndi s.s. frekar deyja en að halda ræðu. Ástæðurnar eru að við óttumst höfnun og gagnrýni og upp koma alls kyns kvíðavekjandi hugsanir um að við munum gleyma öllu því sem við ætluðum að segja, byrja að stama eða roðna, missa röddina, gera okkur að fíflum o.s.frv. 

Þó að flestir kvíði því að tjá sig í margmenni er engin ástæða til að missa stjórn á sér af hræðslu. Hóflegur kvíði er í raun jákvæður því hann veldur því að við nýtum betur hæfileika okkar og getu og náum meiri árangri. Ekki er gott að losna algerlega við taugaspennuna heldur frekar að breyta henni í jákvæða orku sem hjálpar okkur í framkomunni. Að koma fram af sjálfsöryggi þýðir að við þurfum að átta okkur á eigin kostum og göllum, treysta öðrum fyrir okkur, standa með sjálfum okkur og nýta það besta sem okkur er gefið.

Á námskeiðinu auka þátttakendur færni sína í að koma fram af öryggi fyrir framan hóp af fólki. Þeir öðlast betri skilning á eigin kvíðaviðbrögðum og læra að stjórna sviðsskrekk og ótta. Farið er í framkomu og tjáningu, samspil ræðumanns og umhverfis, ótta og öryggi, að ná og halda athygli og kvíðavekjandi og sjálfsstyrkjandi hugsanir. Þátttakendur halda ræður og fá endurgjöf á framkomu sína frá þjálfara og öðrum þátttakendum.

Námskeiðið hentar þeim sem vilja efla framkomu sína fyrir framan stærri sem smærri hópa af fólki.

Leiðbeinandi

Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Að tjá sig í stærri og smærri hópum
  • Kvíði og kvíðaviðbrögð
  • Að ná og halda athygli
  • Ótti og sjálfsöryggi
  • Að nota eigin útgeislun

Ávinningur

  • Meira öryggi fyrir framan hóp af fólki
  • Aukið sjálfstraust
  • Meiri stjórn á eigin kvíðaviðbrögðum
  • Betri og áhrifameiri framsetning

Kennsluaðferðir

  • Stuttir fyrirlestrar
  • Umræður
  • Virk þátttaka
Að koma fram af sjálfsöryggi Námskeið sem henta öllum Lengd: 6 klst. Námskeiðslýsing Þegar fólk er beðið um að nefna þau atriði sem það kvíði mest fyrir setur fjörutíu og eitt prósent það að koma fram fyrir framan hóp af fólki í fyrsta sæti, á undan kjarnorkustríði og gjaldþroti! Stór hluti fólks myndi s.s. frekar deyja en að halda ræðu. Ástæðurnar eru að við óttumst höfnun og gagnrýni og upp koma alls kyns kvíðavekjandi hugsanir um að við munum gleyma öllu því sem við ætluðum að segja, byrja að stama eða roðna, missa röddina, gera okkur að fíflum o.s.frv.  Þó að flestir kvíði því að tjá sig í margmenni er engin ástæða til að missa stjórn á sér af hræðslu. Hóflegur kvíði er í raun jákvæður því hann veldur því að við nýtum betur hæfileika okkar og getu og náum meiri árangri. Ekki er gott að losna algerlega við taugaspennuna heldur frekar að breyta henni í jákvæða orku sem hjálpar okkur í framkomunni. Að koma fram af sjálfsöryggi þýðir að við þurfum að átta okkur á eigin kostum og göllum, treysta öðrum fyrir okkur, standa með sjálfum okkur og nýta það besta sem okkur er gefið. Á námskeiðinu auka þátttakendur færni sína í að koma fram af öryggi fyrir framan hóp af fólki. Þeir öðlast betri skilning á eigin kvíðaviðbrögðum og læra að stjórna sviðsskrekk og ótta. Farið er í framkomu og tjáningu, samspil ræðumanns og umhverfis, ótta og öryggi, að ná og halda athygli og kvíðavekjandi og sjálfsstyrkjandi hugsanir. Þátttakendur halda ræður og fá endurgjöf á framkomu sína frá þjálfara og öðrum þátttakendum. Námskeiðið hentar þeim sem vilja efla framkomu sína fyrir framan stærri sem smærri hópa af fólki. Leiðbeinandi Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf. Meðal þess sem er tekið fyrir: Að tjá sig í stærri og smærri hópum Kvíði og kvíðaviðbrögð Að ná og halda athygli Ótti og sjálfsöryggi Að nota eigin útgeislun Ávinningur Meira öryggi fyrir framan hóp af fólki Aukið sjálfstraust Meiri stjórn á eigin kvíðaviðbrögðum Betri og áhrifameiri framsetning Kennsluaðferðir Stuttir fyrirlestrar Umræður Virk þátttaka
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram