Starfsmannasamtöl
Námskeið fyrir stjórnendur
Fjöldi íslenskra fyrirtækja heldur starfsmannasamtöl, þ.e. að stjórnandi og starfsmaður setjist niður, oftast einu sinni á ári, og ræði frammistöðu beggja. En þá eru rædd m.a. upplifun starfsmannsins í vinnunni, starfsánægja, stjórnun, starfið sjálft, samskipti og líðan á vinnustað, markmið og hvaðeina annað sem stjórnandi og starfsmaður telja að þurfi að ræða.
Starfsmannasamtal á að vera uppbyggilegt og opinskátt samtal. Í samtalinu gefst tækifæri á að bæta hlutina, skilgreina markmið starfsmannsins, ræða starfsframa og aukna ábyrgð og skilgreina þörf starfsmannsins á starfsþróun og fræðslu. Starfsmannasamtal býður líka upp á tækifæri til að hrósa starfsmanni fyrir vel unnin störf. Gildi starfsmannasamtala er ótvírætt en það er eins og með margt annað, það er ekki sama hvernig þau eru framkvæmd og það eina sem er auðvelt er að gera það illa.
Með starfsmannasamtali verður til staður og stund þar sem stjórnandi og starfsmaður setjast niður og ræða saman með skipulögðum hætti um verkefni starfsmannsins, verksvið og ábyrgð ásamt umbótum. Það er mjög gagnlegt fyrir stjórnanda að setjast niður með starfsmanni einu sinni á ári til að ræða frammistöðu í víðu samhengi. Til þess gefst ekki tími í dagsins önn. Í samtalinu skapast möguleiki til að draga fram hindranir í starfi sem ekki hefur gefist umræðugrundvöllur fyrir.
Starfsmannasamtal gerir stjórnandanum kleift að vinna með starfsmönnum sínum að betri árangri með því að veita þeim heiðarlega endurgjöf og hvatningu og vinna sameiginlega að mikilvægum umbótum. Í starfsmannasamtali er ekki eingöngu litið tilbaka heldur líka fram á veginn. Í samtalinu gefst t.d. tækifæri á að skilgreina fræðsluþarfir starfsmannsins ásamt óskum um starfsþróun. Sé starfsmannasamtal framkvæmt á faglegan hátt mun það bæta sambandið milli stjórnanda og starfsmannsins.
- Framkvæmd starfsmannasamtala
- Ástæður starfsmannasamtala
- Kostir og gallar starfsmannasamtala
- Leiðir við mat á frammistöðu
- Að ræða við starfsmenn um frammistöðu
- Það sem ber að varast í starfsmannasamtölum
- Að veita uppbyggilega endurgjöf á frammistöðu
- Samtalstækni
- Aukinn árangur í starfsmannasamtölum
- Meiri færni í samtalstækni
- Aukin færni í að veita endurgjöf á frammistöðu
- Meira öryggi í framkvæmd starfsmannasamtala
- Fyrirlestur
- Umræður
- Æfingar
- Hlutverkaþjálfun
- Virk þátttaka
Lengd:
Námskeiðið er 7 klst. að lengd.
Mögulegir leiðbeinendur:
Ingrid Kuhlman eða Eyþór
Eðvarðsson, þjálfarar og ráðgjafar hjá Þekkingarmiðlun ehf.