44.500 kr.

Að stjórna jafningjum

Stjórnendanámskeið

13. maí kl. 9-16

Námskeiðslýsing

Mörgum finnst það óþægileg staða að vera stjórnandi meðal jafningja. Það að hafa verið einn af hópnum og síðan tekið að sér forystuhlutverkið kallar eðlilega á ákveðna afstöðu og hegðun sem verður að vera til staðar eigi árangur að nást. Fyrirmyndarhlutverkið í jafningjastjórnun er mikilvægasta stjórntækið ásamt því að vera gegnheill og traustur. Sá sem fer fyrir jafningjum verður að sýna þá hegðun sem hann ætlar öðrum. Stjórnandinn verður að hafa virðingu hópsins því á því hvílir hans árangur. 

Hjá öllum jafningjastjórnendum takast á nokkur þekkt málefni eins og það að segja öðrum fyrir verkum, að taka á viðkvæmum málum og segja og gera það sem þarf að gera og segja.

Á námskeiðinu verður farið yfir þau atriði sem stjórnendur jafningja upplifa sem erfið og óþægileg. Skoðað er hvers vegna þau eru erfið og rýnt í það hvernig best er að snúa sér í þeim málum. Farið er yfir nokkrar aðferðir sem gagnast jafningja-stjórnendum og þær ræddar og síðan æfðar.

Um er að ræða krefjandi og lifandi námskeið (vinnustofu) sem hefur að markmiði að efla þá stjórnendur sem eru að stjórna jafningjum eða koma til með að stjórna jafningjum.

Leiðbeinandi

Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Mismunandi stjórnunaraðferðir/stjórnunarstílar.
  • Jafningjastjórnandinn sem fyrirmynd.
  • Að taka á málum á uppbyggilegan og skýran hátt.
  • Það að vera undirmaður, jafningi og yfirmaður.

Ávinningur

  • Meira sjálfstraust og öryggi í stjórnun.
  • Þekkja mismunandi leiðir til að stjórna.
  • Skilningur á þeim kröfum og væntingum gerðar eru.
  • Þekkja helstu mistök sem jafningjastjórnendur gera.

Kennsluaðferðir

  • Fyrirlestrar.
  • Hæfnisþjálfun.
  • Virk þátttaka.
  • Umræður.
Að stjórna jafningjum Stjórnendanámskeið 13. maí kl. 9-16 Námskeiðslýsing Mörgum finnst það óþægileg staða að vera stjórnandi meðal jafningja. Það að hafa verið einn af hópnum og síðan tekið að sér forystuhlutverkið kallar eðlilega á ákveðna afstöðu og hegðun sem verður að vera til staðar eigi árangur að nást. Fyrirmyndarhlutverkið í jafningjastjórnun er mikilvægasta stjórntækið ásamt því að vera gegnheill og traustur. Sá sem fer fyrir jafningjum verður að sýna þá hegðun sem hann ætlar öðrum. Stjórnandinn verður að hafa virðingu hópsins því á því hvílir hans árangur.  Hjá öllum jafningjastjórnendum takast á nokkur þekkt málefni eins og það að segja öðrum fyrir verkum, að taka á viðkvæmum málum og segja og gera það sem þarf að gera og segja. Á námskeiðinu verður farið yfir þau atriði sem stjórnendur jafningja upplifa sem erfið og óþægileg. Skoðað er hvers vegna þau eru erfið og rýnt í það hvernig best er að snúa sér í þeim málum. Farið er yfir nokkrar aðferðir sem gagnast jafningja-stjórnendum og þær ræddar og síðan æfðar. Um er að ræða krefjandi og lifandi námskeið (vinnustofu) sem hefur að markmiði að efla þá stjórnendur sem eru að stjórna jafningjum eða koma til með að stjórna jafningjum. Leiðbeinandi Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf. Meðal þess sem er tekið fyrir: Mismunandi stjórnunaraðferðir/stjórnunarstílar. Jafningjastjórnandinn sem fyrirmynd. Að taka á málum á uppbyggilegan og skýran hátt. Það að vera undirmaður, jafningi og yfirmaður. Ávinningur Meira sjálfstraust og öryggi í stjórnun. Þekkja mismunandi leiðir til að stjórna. Skilningur á þeim kröfum og væntingum gerðar eru. Þekkja helstu mistök sem jafningjastjórnendur gera. Kennsluaðferðir Fyrirlestrar. Hæfnisþjálfun. Virk þátttaka. Umræður.
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram