9.000 kr.

Samskiptastílar - MBTI

Námskeið sem henta öllum

Lengd:

3 klst.

Námskeiðslýsing

Öll erum við einstök en samt svo lík. Munurinn á okkur veldur því m.a. að okkur gengur betur að ná til sumra en annarra. Lykilatriði í öllum samskiptum er að vita hvernig fólk hegðar sér og af hverju það gerir það sem það gerir. 

Ein þekktasta aðferðin til greiningar á samskiptastílum er byggð á kenningu Carl Gustaf Jung um sálfræðilegar týpur. Kenningin gefur innsýn í hegðun og samskiptamáta fólks. Gerð er greinarmunur á 16 sálfræðilegum týpum út frá fjórum þáttum. Þekking á þessum eðlislæga mismun milli einstaklinga opnar nýjar víddir og eykur skilning, umburðarlyndi og árangur í samskiptum.

Á námskeiðinu svara þátttakendur stuttum spurningalista, fluttur er fyrirlestur um kenninguna og farið er í æfingar sem draga fram muninn milli einstaklinganna. Samskipti við vinnufélaga, ættingja, maka og viðskiptavini verða aldrei eins eftir þetta námskeið.

Leiðbeinandi

Eyþór Eðvarðsson eða Ingrid Kuhlman, þjálfarar og ráðgjafar hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Munur á milli einstaklinga.
  • Algengur misskilningur í samskiptum.
  • Ólíkar leiðir fólks í samskiptum.
  • Leiðir til að vinna með ólíku fólki.

Ávinningur

  • Aukinn skilningur á eigin samskiptastíl og annarra.
  • Þekking á algengum vandamálum í samskiptum.
  • Meiri þekking á eðlislægum styrkleikum.
  • Meira umburðarlyndi og ánægjulegri samskipti.

Kennsluaðferðir

  • Spurningalisti.
  • Fyrirlestur.
  • Umræður.
  • Æfingar.
Samskiptastílar - MBTI Námskeið sem henta öllum Lengd: 3 klst. Námskeiðslýsing Öll erum við einstök en samt svo lík. Munurinn á okkur veldur því m.a. að okkur gengur betur að ná til sumra en annarra. Lykilatriði í öllum samskiptum er að vita hvernig fólk hegðar sér og af hverju það gerir það sem það gerir.  Ein þekktasta aðferðin til greiningar á samskiptastílum er byggð á kenningu Carl Gustaf Jung um sálfræðilegar týpur. Kenningin gefur innsýn í hegðun og samskiptamáta fólks. Gerð er greinarmunur á 16 sálfræðilegum týpum út frá fjórum þáttum. Þekking á þessum eðlislæga mismun milli einstaklinga opnar nýjar víddir og eykur skilning, umburðarlyndi og árangur í samskiptum. Á námskeiðinu svara þátttakendur stuttum spurningalista, fluttur er fyrirlestur um kenninguna og farið er í æfingar sem draga fram muninn milli einstaklinganna. Samskipti við vinnufélaga, ættingja, maka og viðskiptavini verða aldrei eins eftir þetta námskeið. Leiðbeinandi Eyþór Eðvarðsson eða Ingrid Kuhlman, þjálfarar og ráðgjafar hjá Þekkingarmiðlun ehf. Meðal þess sem er tekið fyrir: Munur á milli einstaklinga. Algengur misskilningur í samskiptum. Ólíkar leiðir fólks í samskiptum. Leiðir til að vinna með ólíku fólki. Ávinningur Aukinn skilningur á eigin samskiptastíl og annarra. Þekking á algengum vandamálum í samskiptum. Meiri þekking á eðlislægum styrkleikum. Meira umburðarlyndi og ánægjulegri samskipti. Kennsluaðferðir Spurningalisti. Fyrirlestur. Umræður. Æfingar.
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram