9.000 kr.

Listin að breyta hverju sem er

Námskeið sem henta öllum

Lengd:

3 klst.

Námskeiðslýsing

Ef þú ert eins og flest folk hefur þú líklega gert fáeinar tilraunir til að breyta lífi þínu til batnaðar, hvort sem um er að ræða heilsuna, fjárhaginn, samband þitt við makann eða markmið tengd starfinu. Þér hefur líklega verið sagt að viljinn sé allt sem þurfi og að marktækar breytingar hefjist á viljastyrk. 

Áralangar rannsóknir hafa hins vegar leitt í ljós að viljastyrkurinn er bara einn af mörgum áhrifavöldum og að það eru sex þættir sem hafa áhrif á hegðun okkar og daglegar ákvarðanir. Fyrsti þátturinn varðar persónulega hvatningu og lýtur að því að tengja saman lykilhegðun og innri hvata. Annar þátturinn snýst um persónulega hæfni þar sem lykilhegðunarþættirnir eru þjálfaðir. Þriðji áhrifaþátturinn snýst um það að nota þá krafta sem felast í félagslegum áhrifum til að styrkja þá hegðun sem sóst er eftir. Fjórði þátturinn, félagsleg hæfni, er mikilvægur þar sem fólk í hópi eða samfélagi mun þurfa að aðstoða hvert annað ef það ætlar að ná árangri. Fimmti þátturinn er hvatning úr umhverfinu eins og til dæmis viðeigandi umbun. Síðasti þátturinn, skipulagsleg hæfni, er mikilvægur til að tryggja að kerfi, ferli, undirliggjandi strúktúr, sýnileg merki o.s.frv. styðji við lykilhegðunina. Hægt er að verða áhrifavaldur með því að nota alla sex ofangreinda þætti áhrifa.

Á námskeiðinu er farið yfir ofangreinda sex þætti áhrifa. 

Leiðbeinandi

Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Vísindi persónulegs árangurs.
  • Hvað stjórnar okkur?
  • Sex þættir áhrifa. 
  • Að breyta hverju sem er.

Ávinningur

  • Meiri árangur við að ná markmiðum.
  • Árangursríkari breytingar.
  • Meira langvarandi árangur.
  • Bættur árangur.

Kennsluaðferðir

  • Fyrirlestur. 
  • Æfingar. 
  • Umræður.
  • Virk þátttaka.
Listin að breyta hverju sem er Námskeið sem henta öllum Lengd: 3 klst. Námskeiðslýsing Ef þú ert eins og flest folk hefur þú líklega gert fáeinar tilraunir til að breyta lífi þínu til batnaðar, hvort sem um er að ræða heilsuna, fjárhaginn, samband þitt við makann eða markmið tengd starfinu. Þér hefur líklega verið sagt að viljinn sé allt sem þurfi og að marktækar breytingar hefjist á viljastyrk.  Áralangar rannsóknir hafa hins vegar leitt í ljós að viljastyrkurinn er bara einn af mörgum áhrifavöldum og að það eru sex þættir sem hafa áhrif á hegðun okkar og daglegar ákvarðanir. Fyrsti þátturinn varðar persónulega hvatningu og lýtur að því að tengja saman lykilhegðun og innri hvata. Annar þátturinn snýst um persónulega hæfni þar sem lykilhegðunarþættirnir eru þjálfaðir. Þriðji áhrifaþátturinn snýst um það að nota þá krafta sem felast í félagslegum áhrifum til að styrkja þá hegðun sem sóst er eftir. Fjórði þátturinn, félagsleg hæfni, er mikilvægur þar sem fólk í hópi eða samfélagi mun þurfa að aðstoða hvert annað ef það ætlar að ná árangri. Fimmti þátturinn er hvatning úr umhverfinu eins og til dæmis viðeigandi umbun. Síðasti þátturinn, skipulagsleg hæfni, er mikilvægur til að tryggja að kerfi, ferli, undirliggjandi strúktúr, sýnileg merki o.s.frv. styðji við lykilhegðunina. Hægt er að verða áhrifavaldur með því að nota alla sex ofangreinda þætti áhrifa. Á námskeiðinu er farið yfir ofangreinda sex þætti áhrifa.  Leiðbeinandi Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. Meðal þess sem er tekið fyrir: Vísindi persónulegs árangurs. Hvað stjórnar okkur? Sex þættir áhrifa.  Að breyta hverju sem er. Ávinningur Meiri árangur við að ná markmiðum. Árangursríkari breytingar. Meira langvarandi árangur. Bættur árangur. Kennsluaðferðir Fyrirlestur.  Æfingar.  Umræður. Virk þátttaka.
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram