Það ætti ekki að koma neinum á óvart að það er flókið að þykjast vera hamingjusamur á sama tíma og þrengt er að umferð akandi bíla við Suðurlandsbraut. Ekki bætir úr skák að allt þetta brosandi fólk á samfélagsmiðlum virðist fullkomlega sátt við lífið, og jafnvel einkunnir í bókstöfum í grunnskólum.
Hvað er eiginlega að fólki?
Í þessum lifandi og „fræðilega“ fyrirlestri er hamingjan skoðuð á óvenjulegan hátt: með því að ræða það sem dregur okkur niður. Farið yfir að minnsta kosti tíu algengar venjur sem grafa undan vellíðan, oft án þess að við tökum eftir því.
Með blöndu af fræðilegri innsýn, húmor og beittum dæmum fá áheyrendur skýra mynd af því hvernig litlar daglegar venjur móta líðan. Og, ef vilji er fyrir hendi, hvernig hægt er að snúa þróuninni við.
Fyrirlesari: Ingrid Kuhlman, M.A. í hagnýti jákvæðri sálfræði.

