9.000 kr.

Virkjum kraftinn í streitunni

Námskeið sem henta öllum

Lengd:

3 klst.

Námskeiðslýsing

Nýjustu streiturannsóknir sýna að við höfum stórlega vanmetið þau miklu jákvæðu áhrif sem streita getur haft á okkur.

Í metsölubókinni The Upside of Stress eftir heilsusálfræðinginn PhD Kelly McGonigal við Stanford háskóla eru teknar saman fjölmargar rannsóknir sem varpa ljósi á eðli streitu og hvernig hægt er að virkja hana til góðra verka. Það hvernig við hugsum skiptir mestu því kraftur hugans er mikill. Sem dæmi þá eru þeir sem trúa því að streita sé slæm líklegir til að upplifa neikvæðar afleiðingar af þessu kröftuga viðbragði. Þeir sem aftur á móti hafa tilgang í lífinu, hugsa um aðra og trúa því að streita sé góð eru í næstum engri hættu á streitutengdum vandamálum, jafnvel þó að aðstæður þeirra séu mjög streituvekjandi.  Ekki nóg með það heldur styrkist hjarta- og æðakerfið, heilinn þroskast hraðar, góðmennska eykst og samvinna og frammistaða batnar.

Hugurinn hefur áhrif á líkamann og með einföldum hugarfarsaðferðum er hægt að virkja streituviðbragðið til stórra verka enda viðbragðið með eindæmum aflmikið.

Sagt er frá næstum því ótrúlegum rannsóknum sem gerðar hafa verið og þar koma m.a. fram systkinin kortisól, oxýtosín, serótonín, adrenalín og útlenskur frændi þeirra DHEA. Nágranninn Ghrelin hungurhormónið kemur einnig við sögu.

Um er að ræða hagnýta vinnustofu sem hentar öllum sem vilja skilja betur fyrirbærið og ná að virkja kraftinn sem felst í streitunni.

Leiðbeinandi

Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Áhrif hugarfars á líkamann, m.a. ógnar- og áskorunarviðbragðið
  • Hvað segja rannsóknir á áhrifum hugarfars, streitu og árangurs okkur?
  • Hagnýtar aðferðir, m.a. þriggja skrefa aðferð við að virkja streituviðbragðið

Ávinningur

  • Skilningur á þeim kerfum sem varða streituviðbragðið
  • Þekking á einfaldri þriggja skrefa aðferð til að virkja viðbragðið
  • Skilningur á því hvað hefur áhrif á streitu
  • Gagnlegar aðferðir í rauntíma til að ná árangri og tengjast hugarfari

Kennsluaðferðir

  • Fyrirlestur
  • Hæfniþjálfun
  • Virk þátttaka
  • Umræður
Virkjum kraftinn í streitunni Námskeið sem henta öllum Lengd: 3 klst. Námskeiðslýsing Nýjustu streiturannsóknir sýna að við höfum stórlega vanmetið þau miklu jákvæðu áhrif sem streita getur haft á okkur. Í metsölubókinni The Upside of Stress eftir heilsusálfræðinginn PhD Kelly McGonigal við Stanford háskóla eru teknar saman fjölmargar rannsóknir sem varpa ljósi á eðli streitu og hvernig hægt er að virkja hana til góðra verka. Það hvernig við hugsum skiptir mestu því kraftur hugans er mikill. Sem dæmi þá eru þeir sem trúa því að streita sé slæm líklegir til að upplifa neikvæðar afleiðingar af þessu kröftuga viðbragði. Þeir sem aftur á móti hafa tilgang í lífinu, hugsa um aðra og trúa því að streita sé góð eru í næstum engri hættu á streitutengdum vandamálum, jafnvel þó að aðstæður þeirra séu mjög streituvekjandi.  Ekki nóg með það heldur styrkist hjarta- og æðakerfið, heilinn þroskast hraðar, góðmennska eykst og samvinna og frammistaða batnar. Hugurinn hefur áhrif á líkamann og með einföldum hugarfarsaðferðum er hægt að virkja streituviðbragðið til stórra verka enda viðbragðið með eindæmum aflmikið. Sagt er frá næstum því ótrúlegum rannsóknum sem gerðar hafa verið og þar koma m.a. fram systkinin kortisól, oxýtosín, serótonín, adrenalín og útlenskur frændi þeirra DHEA. Nágranninn Ghrelin hungurhormónið kemur einnig við sögu. Um er að ræða hagnýta vinnustofu sem hentar öllum sem vilja skilja betur fyrirbærið og ná að virkja kraftinn sem felst í streitunni. Leiðbeinandi Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf. Meðal þess sem er tekið fyrir: Áhrif hugarfars á líkamann, m.a. ógnar- og áskorunarviðbragðið Hvað segja rannsóknir á áhrifum hugarfars, streitu og árangurs okkur? Hagnýtar aðferðir, m.a. þriggja skrefa aðferð við að virkja streituviðbragðið Ávinningur Skilningur á þeim kerfum sem varða streituviðbragðið Þekking á einfaldri þriggja skrefa aðferð til að virkja viðbragðið Skilningur á því hvað hefur áhrif á streitu Gagnlegar aðferðir í rauntíma til að ná árangri og tengjast hugarfari Kennsluaðferðir Fyrirlestur Hæfniþjálfun Virk þátttaka Umræður
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram