18.000 kr.

Hrós og gagnrýni

Námskeið fyrir stjórnendur

Lengd:

3 klst. 

Námskeiðslýsing

Ein algengasta niðurstaðan úr vinnustaðarkönnunum á Íslandi er að fólki finnst það fá of litla endurgjöf þ.e. of lítla gagnrýni á það sem betur mætti fara og of lítið hrós. Gagnrýni reynist mörgum stjórnendum og starfsmönnum erfið enda getur óvönduð gagnrýni auðveldlega dregið dilk á eftir sér í samskiptum. Algeng viðbrögð eru að fólk verður reitt og sárt eða lætur eitthvað flakka á móti. Eðlilega veigra margir sér við því að veita endurgjöf og láta þögnina duga. En hvernig á að gagnrýna? 

Marshall Rosenberg sem er höfundur bókarinnar Non-Violent Communication setur fram mjög hagnýta leið um það hvernig eigi að gagnrýna þannig að fólk fari ekki í vörn. Aðferðin er í fimm skrefum, einföld í framkvæmd og mjög áhrifarík. Rosenberg er einnig með aðferð um það hvernig megi hrósa svo að eftir því sé tekið. 

Vandamálið við að hrósa er af aðeins öðrum meiði. Fólk vill fá hrós fyrir vel unnin störf en þegar viðkomandi fær svo hrós er tilhneiging til að gera lítið úr því. Vel veitt hrós þarf því að rökstyðja og útskýra ef vel á að vera.  

Af öðrum fræðimönnum sem hafa rannsakað og skrifað um þennan hluta samskipta fólks má nefna Kerry Patterson, Joseph Grenny, Ron McMillan og Al Switzler í bókinni Crucial Conversations: Tools for talking when stakes are high. Þar er farið yfir það hvernig koma megi í veg fyrir að fólk fari í vörn og hvernig vinna megi með það í samtölum ef fólk fer í vörn.

Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja geta gagnrýnt og tjáð óánægju sína án þess að það verði óþægilegir eftirmálar. 

Leiðbeinandi

Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Ofbeldislaus samskipti
  • Að byggja upp traust í samtölum
  • Að ræða gagnrýni án þess að fólk fari í vörn
  • Að hrósa fyrir vel unnin störf

Ávinningur

  • Lipurð í samskiptum
  • Læsi á varnarviðbrögð í samtölum
  • Þekking á aðferðum við að gagnrýna
  • Betri færni í að hrósa

Kennsluaðferðir

  • Fyrirlestur 
  • Umræður 
  • Æfingar 
Hrós og gagnrýni Námskeið fyrir stjórnendur Lengd: 3 klst.  Námskeiðslýsing Ein algengasta niðurstaðan úr vinnustaðarkönnunum á Íslandi er að fólki finnst það fá of litla endurgjöf þ.e. of lítla gagnrýni á það sem betur mætti fara og of lítið hrós. Gagnrýni reynist mörgum stjórnendum og starfsmönnum erfið enda getur óvönduð gagnrýni auðveldlega dregið dilk á eftir sér í samskiptum. Algeng viðbrögð eru að fólk verður reitt og sárt eða lætur eitthvað flakka á móti. Eðlilega veigra margir sér við því að veita endurgjöf og láta þögnina duga. En hvernig á að gagnrýna?  Marshall Rosenberg sem er höfundur bókarinnar Non-Violent Communication setur fram mjög hagnýta leið um það hvernig eigi að gagnrýna þannig að fólk fari ekki í vörn. Aðferðin er í fimm skrefum, einföld í framkvæmd og mjög áhrifarík. Rosenberg er einnig með aðferð um það hvernig megi hrósa svo að eftir því sé tekið.  Vandamálið við að hrósa er af aðeins öðrum meiði. Fólk vill fá hrós fyrir vel unnin störf en þegar viðkomandi fær svo hrós er tilhneiging til að gera lítið úr því. Vel veitt hrós þarf því að rökstyðja og útskýra ef vel á að vera.   Af öðrum fræðimönnum sem hafa rannsakað og skrifað um þennan hluta samskipta fólks má nefna Kerry Patterson, Joseph Grenny, Ron McMillan og Al Switzler í bókinni Crucial Conversations: Tools for talking when stakes are high. Þar er farið yfir það hvernig koma megi í veg fyrir að fólk fari í vörn og hvernig vinna megi með það í samtölum ef fólk fer í vörn. Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja geta gagnrýnt og tjáð óánægju sína án þess að það verði óþægilegir eftirmálar.  Leiðbeinandi Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf. Meðal þess sem er tekið fyrir: Ofbeldislaus samskipti Að byggja upp traust í samtölum Að ræða gagnrýni án þess að fólk fari í vörn Að hrósa fyrir vel unnin störf Ávinningur Lipurð í samskiptum Læsi á varnarviðbrögð í samtölum Þekking á aðferðum við að gagnrýna Betri færni í að hrósa Kennsluaðferðir Fyrirlestur  Umræður  Æfingar 
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram