Hófsöm og umhverfisvæn hugsun fyrir jólin

Við Íslendingar erum þekktir fyrir að fara á eyðslufyllerí í desember þegar jólin eru að næsta leiti. Við straujum greiðslukortunum eins og enginn sé morgundagurinn og kaupum oft hluti sem engin þörf er fyrir.

Kaupsýslumenn hvetja okkur til að undirbúa jólin í verslunum landsins og reyna að telja okkur trú um að jólin byrji þar.

Afleiðingin af þessari gengdarlausu ofneyslu er ekki aðeins að híbýli okkar, barnaherbergi, stofur og fataskápar fyllast af hlutum sem eiga sér stuttan lífdaga og enda svo á haugunum. Það sem er enn verra er að gengið er á náttúruauðlindir og lífgæði okkar sjálfra, barnanna okkar og afkomenda þeirra. Lífsstíll okkar er langt frá því að vera sjálfbær. Rannsóknir hafa m.a. bent til þess að við þyrftum fimm hnetti á borð við jörðina til að viðhalda því neyslustigi sem ríkjandi er í dag. Það er mikilvægt að við sýnum hófsemi og ábyrgð í umgengni okkar um jarðargæði, vinnum gegn sóun og ofneyslu og tileinkum okkur látlausari lífsstíl og neyslu. Höfum þetta hugfast nú þegar jólaverslun er gengin í garð.

Hér fyrir neðan eru nokkrar hugmyndir að umhverfisvænum jólagjöfum:

  • Heimagerðar jólagjafir, t.d. með því að föndra, gera skartgrip, prjóna peysu eða vettlinga, búa til jólakonfekt, gefa þurrkaða villisveppi sem við týndum sjálf eða annað góðgæti, búa jólaskreytingu, baka jólakökur eða skreyta kerti. Hægt er að fylla krukku af jurtatei, sultuðum rauðlauk, ristuðum kanilmöndlum, þurrkuðum jurtum, karamellupoppi o.s.frv.
  • Gjafabréf á eigin framlög, eins og t.d. að bjóða í matarboð að spænskum sið, gefa nudd, bjóða nýbökuðum foreldrum pössun á meðan þau fara í bíó, slá garðinn hjá ömmu, bjóða fjölskyldunni í samverustund uppi í bústað, bjóða í lautarferð, kenna fólki að mála, dansa, jóga o.s.frv.
  • Upplifun eins og t.d. miði í leikhús eða á tónleika, út að borða, námskeið, tími í jóga, útivist, nudd eða dekur, eða tíma í golfhermi. Einnig er hægt að gefa áskrift að sjónvarpsrás, veftímariti eða tónlistarvefverslun.
  • Jólagjöf þar sem andvirðið rennur til góðgerðarmála, en slíkar gjafir er hægt að versla á jólamörkuðum hjá mörgum félagasamtökum. Einnig er hægt að versla gjafabréf á netinu, t.d. á vefsvæðinu www.gjofsemgefur.is og styrkja börn til náms, gefa húsdýr, bóluefni, neyðarpakka ofl.
  • Vandaðar jólagjafir sem endast, eins og t.d. leikföng úr timbri, vönduð bók, ljósmynd í ramma, falleg planta, margnota innkaupapoka, margnota kaffimál fyrir kaffiunnendur eða flík úr náttúrulegum efnum. Gott er að muna eftir að kaupa umhverfisvottaðar vörur (Svansmerktar) eins og kostur er.

Með einföldum breytingum á venjum okkar má draga svo um munar úr áhrifum neyslusamfélagsins á umhverfið. Þetta hefur í för með sér bætt lífsgæði fyrir okkur öll. 

Greinarhöfundur: Ingrid Kuhlman. Birtist á Pressunni 28. nóvember 2016.