Hefur þú knúsað einhvern í dag?

Rannsóknir sýna að áhrif innilegs faðmlags eru ótvíræð. Meðalfaðmlag varir í um þrjár sekúndur en sýnt hefur verið fram á það að faðmlag sem varir í 20 sekúndur hefur læknandi áhrif á líkama og sál.

Faðmlög virka vel gegn sjúkdómum, einmanaleika, þunglyndi, kvíða og streitu. Innilegt og ástríkt faðmlag þar sem hjörtu tveggja einstaklinga þrýstast saman getur gagnast okkur á eftirfarandi hátt:

  1. Sú nærandi snerting sem felst í faðmlagi skapar traust og öryggistilfinningu, sem stuðlar að opnum og heiðarlegum samskiptum.
  2. Faðmlög stuðla að losun oxytocin, sem sumir kalla ástarhormón, en það auðveldar tengslamyndun, samstarf og eykur hamingjuna. Sömu áhrifin koma fram þegar við klöppum gæludýrum. 
  3. Faðmlag í að minnsta kosti 20 sekúndur hækkar magn serótóníns og dópamíns í blóðinu, en þau eru vellíðunarefni sem hafa áhrif á skapferli og almenna virkni. 
  4. Faðmlög styrkja ónæmiskerfið þar sem þau örva hóstarkirtilinn en hann stjórnar framleiðslu líkamans á hvítum blóðkornum sem halda okkur heilbrigðum og koma í veg fyrir sjúkdóma. 
  5. Faðmlög lækka blóðþrýsting og draga þar með úr hættunni á hjarta- og æðasjúkdómum.
  6. Faðmlag eykur marktækt magn hemóglóbín í blóðinu sem ber ábyrgð á flutningi súrefnis til líffæranna eins og heila og hjarta. Aukning á hemóglóbíni styrkir líkamann, kemur í veg fyrir sjúkdóma og hraðar bata. 
  7. Faðmlög styrkja sjálfsálitið. Frá því við fæðumst sýnir snerting fjölskyldumeðlima okkur að við erum elskuð og sérstök. Faðmlögin sem við fengum frá foreldrum okkar í æskunni eru innstimpluð í taugakerfi okkar.
  8. Faðmlög losa spennu í líkamanum og lina verki með því að örva taugaenda og auka blóðflæðið í mjúku vefjunum.
  9. Faðmlög koma jafnvægi á taugakerfið. Þegar við fáum knús breytist leiðni í húðinni. Breytingin á rakastigi og rafmagni í húðinni skapar jafnvægi í taugakerfinu.
  10. Faðmlög kenna okkur að gefa og þiggja. Það er jafn mikilvægt að taka á móti og vera móttækilegur fyrir hlýju og að gefa og deila. Faðmlög kenna okkur að ást er gagnkvæm.
  11. Faðmlög virka að mörgu leyti eins og hugleiðsla og hlátur. Þau kenna okkur að sleppa og lifa í núinu og hvetja okkur til að láta berast með orku lífsins. Við tengjumst tilfinningum okkar, hjörtum og öndun. 
  12. Orkuskiptin milli tveggja einstaklinga sem faðmast er fjárfesting í sambandinu. Snerting ýtir undir samkennd og skilning og skapar nánd.
  13. Faðmlög hafa engar aukaverkanir og ekki þarf lyfjaávísun frá lækni :-)

Hefur þú knúsað einhvern í dag?

Greinarhöfundur: Ingrid Kuhlman. Birtist á Pressunni 31. janúar 2014.