Leitin að hamingjunni - Fyrirlestur og heimildarmynd

Leitin að hamingjunni - Fyrirlestur og heimildarmynd

Hvað er það sem gerir lífið hamingjuríkt? Er til einhver uppskrift að góðu og innihaldsríku lífi? Þessar spurningar hafa verið heimspekingum, rithöfundum og listamönnum hugleiknar um aldaraðir og á síðari árum hafa vísindamenn einnig lagt sig fram um að varpa ljósi á leyndardóma hamingjunnar.

Rannsóknir á sviði jákvæðrar sálfræði hafa meðal annars beint sjónum að hamingju og vellíðan á efri árum. Þær benda til þess að margir upplifi aukna lífsánægju með hækkandi aldri og að árin eftir starfslok geti verið tími nýrra tækifæra, aukins frelsis og innihaldsríks lífs. Við getum því margt lært af reynslu og lífsvisku eldri kynslóða.

Í þessari hjartnæmu heimildarmynd er rætt við 13 einstaklinga á aldrinum 70 til 91 árs sem deila reynslu sinni, viðhorfum og hugmyndum um hamingjuna. Viðmælendur veita okkur heillandi innsýn í það sem gefur lífi þeirra gleði, tilgang og innihald og hvernig þeir rækta eigin vellíðan í daglegu lífi.

Myndin býður áhorfendum að staldra við, endurskoða eigin hugmyndir um hamingjuna og sækja innblástur í lífsreynslu þeirra sem hafa lifað lengi og lært margt á leiðinni.

Fyrirlesari: Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Image
Við sérhæfum okkur í því að miðla þekkingu með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum.

Hafa samband

Þekkingarmiðlun ehf. 
Kt. 440102-2550

Ingrid, s. 892 2987
ingrid@thekkingarmidlun.is

Eyþór, s. 892 1987
eythor@thekkingarmidlun.is