Hversu full er fatan þín?

Hversu full er fatan þín?

Við eigum öll okkar ósýnilegu fötu sem við berum með okkur hvert sem við förum. Í henni geymum við tilfinningar okkar og líðan. Fatan fyllist við jákvæð samskipti, svo sem hlý orð, hvatningu, hrós og viðurkenningu, en tæmist við neikvæð samskipti, eins og nöldur, niðurrif og óuppbyggilega gagnrýni.

Þegar fatan okkar er full finnum við fyrir meiri gleði, orku og vellíðan. Þegar hún tæmist getur það hins vegar haft neikvæð áhrif á líðan okkar, samskipti og frammistöðu. Og það besta er að þegar við fyllum fötu annarra, fyllum við um leið okkar eigin.

Í fyrirlestrinum er fjallað um hvernig við getum með einföldum, daglegum athöfnum fyllt bæði okkar eigin fötu og annarra. Þátttakendur læra að þekkja þau samskipti og þá hegðun sem ýmist fylla eða tæma fötuna og hvernig hægt er að stuðla að aukinni gleði, jákvæðni og vellíðan í daglegu lífi og starfi.

Fyrirlesturinn byggir meðal annars á hugmyndafræði bókanna How Full Is Your Bucket? og Fish! A Remarkable Way to Boost Morale and Improve Results.

 

Við eigum öll okkar myndrænu, ósýnilegu fötu sem við tökum með okkur hvert sem við förum. Í fötunni geymum við tilfinningar okkar. Fatan fyllist af jákvæðum samskiptum eins og klappi á bakið eða fallegum orðum í okkar garð en hún tæmist af neikvæðum samskiptum eins og t.d. nöldri eða gagnrýni annarra. Okkur líður frábærlega þegar fatan okkar er full, og hörmulega þegar hún er tóm.

Því meira sem er í fötunni okkar, því auðveldara verður að deila umfram magninu með öðrum. 

Á námskeiðinu er farið í leiðir til að fylla fötuna. Byggt er m.a. á bókunum How full is your bucket? og Fish! A Remarkable Way to Boost Morale and Improve Results.

Fyrirlesari: Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun

Image
Við sérhæfum okkur í því að miðla þekkingu með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum.

Hafa samband

Þekkingarmiðlun ehf. 
Kt. 440102-2550

Ingrid, s. 892 2987
ingrid@thekkingarmidlun.is

Eyþór, s. 892 1987
eythor@thekkingarmidlun.is