Að auka vellíðan í lífi og starfi

Að auka vellíðan í lífi og starfi

Hvað er það sem gerir lífið þess virði að lifa því? Hvað einkennir fólk sem tekst að blómstra, takast á við áskoranir og njóta lífsins, jafnvel þegar á móti blæs?

Jákvæð sálfræði er vísindaleg nálgun sem leitast við að svara þessum spurningum. Hún beinir sjónum að því sem gerir lífið innihaldsríkt og stuðlar að vellíðan og farsæld. Meðal viðfangsefna hennar eru styrkleikar, jákvæðar tilfinningar, þakklæti, seigla, von, bjartsýni, tilgangur og hamingja. Í stað þess að einblína á það sem amar að fólki er áherslan lögð á að skilja hvað hjálpar einstaklingum að þroskast, takast á við áskoranir og blómstra í lífi og starfi.

Í þessum fróðlega fyrirlestri er fjallað um helstu niðurstöður rannsókna á hamingju og vellíðan, hvernig hægt er að mæla þessi fyrirbæri og hvaða þættir hafa mest áhrif á lífsgæði okkar. Kynntar eru gagnreyndar leiðir til að efla vellíðan, styrkja jákvæðar tilfinningar og skapa betri forsendur fyrir innihaldsríku og farsælu lífi.

Fyrirlesari: Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun

Image
Við sérhæfum okkur í því að miðla þekkingu með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum.

Hafa samband

Þekkingarmiðlun ehf. 
Kt. 440102-2550

Ingrid, s. 892 2987
ingrid@thekkingarmidlun.is

Eyþór, s. 892 1987
eythor@thekkingarmidlun.is