Greiðsluskilmálar

Opin námskeið

Skráning á námskeið felur í sér ákveðnar fjárhagslegar skuldbindingar fyrir Þekkingarmiðlun, svo sem vegna salarleigu, veitinga og annars undirbúnings. Því gilda eftirfarandi skilmálar um skráningu og afbókanir á opin námskeið.

Greiðsla námskeiðsgjalda

Reikningar vegna námskeiðsgjalda eru að jafnaði sendir þátttakendum að námskeiði loknu. Í ákveðnum tilvikum er þó óskað eftir fyrirframgreiðslu.

Greiðsla námskeiðsgjalda

Reikningar vegna námskeiðsgjalda eru að jafnaði sendir þátttakendum að námskeiði loknu. Í ákveðnum tilvikum er þó óskað eftir fyrirframgreiðslu.

Afbókanir og forföll

Þátttakendur sem þurfa að afboða þátttöku skulu tilkynna það með tölvupósti á thekkingarmidlun@thekkingarmidlun.is eða í síma 892 2987, eigi síðar en tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.

Berist afbókun eftir þann frest áskilur Þekkingarmiðlun sér rétt til að innheimta 5.000 kr. skráningar- og umsýslugjald.

Ef þátttakandi mætir ekki á námskeið án þess að hafa afboðað þátttöku eða hættir þátttöku eftir að námskeið er hafið, áskilur Þekkingarmiðlun sér rétt til að innheimta allt að 100% af námskeiðsgjaldinu.

Heimilt er að senda annan þátttakanda í stað þess sem forfallast.

Vinnustaðarnámskeið

Breytingar á áður samþykktri námskeiðsáætlun, svo sem niðurfellingu námskeiðs eða breytingar á tímalengd þess, skal tilkynna eigi síðar en 10 dögum fyrir áætlað upphaf námskeiðs.

Berist tilkynning um breytingar eftir þann frest áskilur Þekkingarmiðlun sér rétt til að innheimta fullt gjald samkvæmt upphaflegri áætlun.

Image
Við sérhæfum okkur í því að miðla þekkingu með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum.

Hafa samband

Þekkingarmiðlun ehf. 
Kt. 440102-2550

Ingrid, s. 892 2987
ingrid@thekkingarmidlun.is

Eyþór, s. 892 1987
eythor@thekkingarmidlun.is