20.500 kr.

Hver verður staða mín við starfslok?

24. febrúar kl. 16.30-18.30

Námskeiðslýsing

Það liggur fyrir okkur flestum að eldast og fara á eftirlaun. Við vonum öll að þessi tími verði áhyggjulaus og oftast er hann það en það er ekkert sjálfgefið. Það er mikil áskorun að fara inn í eftirlaunaárin og hætta á vinnumarkaði. Það verða bæði fjárhagslegar og félagslegar breytingar, sem margir hræðast. 

Guðmundur Ragnarsson hefur mikla reynslu af þessum málum og fer í fyrirlestrinum yfir þau fjölmörgu atriði sem þarf að huga að þegar styttist í starfslok. Meðal þess sem hann fer yfir er að vera með skýra sýn á það hver framfærslan verður frá lífeyrissjóðnum og Tryggingastofnun og hvar maður getur séð stöðuna.

Annað sem þarf að vera á hreinu eru sambúðar- og erfðamálin, en illa getur farið ef ekki er vandað til verka. Guðmundur ræðir einnig um mikilvægi þess að njóta lífsins á meðan heilsan er góð.

Fyrirlesturinn vekur upp margar spurningar sem gott er að skoða tímanlega og komast úr því að halda, sem veldur áhyggjum, yfir í að vita, sem veitir öryggi. Hann hentar þeim sem eru komnir yfir fimmtugt og stefna á að eiga áhyggjulaust ævikvöld. 

Leiðbeinandi

Guðmundur Ragnarsson er vélfræðingur og starfaði sem form VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna í 10 ár. Hann var stjórnarmaður í Gildi lífeyrisjóði í 8 ár og sat í miðstjórn ASÍ í 10 ár. Hann rekur í dag GR ráðgjöf og veitir fólki persónulega ráðgjöf varðandi starfslok. 


Námskeiðið verður haldið í fræðslusetri rafiðnaðarins (RAFMENNT) við Stórhöfða 27.

Hver verður staða mín við starfslok? 24. febrúar kl. 16.30-18.30 Námskeiðslýsing Það liggur fyrir okkur flestum að eldast og fara á eftirlaun. Við vonum öll að þessi tími verði áhyggjulaus og oftast er hann það en það er ekkert sjálfgefið. Það er mikil áskorun að fara inn í eftirlaunaárin og hætta á vinnumarkaði. Það verða bæði fjárhagslegar og félagslegar breytingar, sem margir hræðast.  Guðmundur Ragnarsson hefur mikla reynslu af þessum málum og fer í fyrirlestrinum yfir þau fjölmörgu atriði sem þarf að huga að þegar styttist í starfslok. Meðal þess sem hann fer yfir er að vera með skýra sýn á það hver framfærslan verður frá lífeyrissjóðnum og Tryggingastofnun og hvar maður getur séð stöðuna. Annað sem þarf að vera á hreinu eru sambúðar- og erfðamálin, en illa getur farið ef ekki er vandað til verka. Guðmundur ræðir einnig um mikilvægi þess að njóta lífsins á meðan heilsan er góð. Fyrirlesturinn vekur upp margar spurningar sem gott er að skoða tímanlega og komast úr því að halda, sem veldur áhyggjum, yfir í að vita, sem veitir öryggi. Hann hentar þeim sem eru komnir yfir fimmtugt og stefna á að eiga áhyggjulaust ævikvöld.  Leiðbeinandi Guðmundur Ragnarsson er vélfræðingur og starfaði sem form VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna í 10 ár. Hann var stjórnarmaður í Gildi lífeyrisjóði í 8 ár og sat í miðstjórn ASÍ í 10 ár. Hann rekur í dag GR ráðgjöf og veitir fólki persónulega ráðgjöf varðandi starfslok.  Námskeiðið verður haldið í fræðslusetri rafiðnaðarins (RAFMENNT) við Stórhöfða 27.
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram