Krafturinn í hrósi

Alþjóðlegi hrós­dag­ur­inn, sem er hald­inn hátíðleg­ur 1. mars ár hvert, er gott tækifæri til að minna okkur á kraftinn í hrósinu.

Haldið var fyrst upp á hrósdaginn í Hollandi fyr­ir 21 ári en hann hefur síðan þá náð útbreiðslu um heim allan, þar með talið hér á landi.

Mikilvægi þess að gefa og þiggja hrós er óumdeilanlegt, hvort sem er í persónulegum samböndum, á vinnustað, í skólaumhverfi eða í íþróttum. En hvers vegna gegnir hrós svona mikilvægu hlutverki í mannlegum samskiptum?

1. Hrós eykur sjálfsöryggi og trú á eigin getu

Hrós og jákvæð viðurkenning getur aukið sjálfstraust og sjálfsöryggi. Þegar einstaklingur upplifir að framlag hans sé viðurkennt og metið að verðleikum styrkir það sjálfsmynd hans.

2. Hrós eykur hvatningu

Jákvæð styrking á borð við hrós og klapp á bakið getur aukið hvatningu. Að sjá framlag sitt metið hvetur fólk til að halda áfram að leggja sig fram og ná frekari árangri.

3. Hrós stuðlar að jákvæðri orku í samskiptum

Í persónulegum samböndum getur hrós virkað sem staðfesting á væntumþykju og virðingu og aukið þannig tilfinningaleg tengsl milli fólks.

4. Hrós skapar uppbyggilegt andrúmsloft á vinnustað

Á vinnustað getur menning sem byggir á viðurkenningu og hrósi skapað stuðningsríkt og samvinnuþýtt umhverfi. Starfsmenn sem fá reglulega hrós finna fyrir meiri starfsánægju og eru líklegri til að stuðla að jákvæðu andrúmslofti á vinnustað.

5. Hrós ýtir undir persónulegan og faglegan þroska

Uppbyggileg endurgjöf eins og hrós getur ýtt undir persónulegan og faglegan þroska. Að draga fram styrkleika og árangur getur hjálpað einstaklingi við að bera kennsl á hæfileika sína og svið þar sem hann getur skarað fram úr. Þannig verður hrós til þess að efla áhuga og ástríðu.

6. Hrós hvetur til og viðheldur jákvæðri hegðun

Hrós er mikilvægt tól til að viðhalda og styrkja jákvæða hegðun. Í skólum getur hrós fyrir dugnað, hugmyndaauðgi eða góðverk virkað sem hvatning fyrir nemendur til að halda áfram og efla þessar dyggðir.

7. Hrós dregur úr neikvæðum tilfinningum

Hrós vekur jákvæðar tilfinningar á borð við gleði, stolt og þakklæti og getur dregið úr neikvæðum tilfinningum eins og gremju, kvíða og lágu sjálfsmati, sérstaklega í áskorunum sem fólk stendur frammi fyrir á vinnustað eða í skólum.

8. Hrós eflir menningu þakklætis

Þegar einstaklingur fær þakklæti og hrós fyrir framlag sitt er hann líklegri til að hrósa öðrum og sýna þeim velvild. Þessi gagnkvæma viðurkenning skapar keðjuverkun og stuðlar að þakklætismenningu sem ýtir undir aukna hamingju, ánægju og vellíðan.  

9. Hrós stuðlar að jákvæðri hegðunarbreytingu

Hrós er ekki aðeins grundvallaratriði í að viðhalda jákvæðri hegðun heldur getur það einnig verið öflugt verkfæri til að hvetja til nýrrar eða breyttrar hegðunar. Hrós fyrir æskilega hegðun hvetur til endurtekningar á þeirri hegðun.

10. Hrós er viðurkenning á fjölbreytni

Að hrósa fyrir og viðurkenna framlag hvers og eins, óháð kynþætti, kyni, trúarbrögðum, kynhneigð, menningarlegum bakgrunni eða fötlun, skapar umhverfi þar sem fjölbreytni er ekki aðeins viðurkennd heldur fagnað. Hrós getur þannig hvatt til inngildingar og byggt brýr á milli ólíkra hópa þannig að allir finni fyrir því að þeir tilheyri og séu metnir að verðleikum.

Gerum hrós að daglegri venju

Að færa öðrum hrós getur haft djúpstæð áhrif, bæði á þann sem gefur hrós og þann sem þiggur það. Gerðu því hrós að daglegri venju. Líttu í kringum þig og veittu því athygli sem vel er gert. Láttu fólk vita að þú takir eftir og metir framlag þess. Nokkur vel valin orð geta haft mikil áhrif.

Greinarhöfundur: Ingrid Kuhlman, leiðbeinandi og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun og með meistaragráðu í jákvæðri sálfræði. Hún hrinti hrósdeginum af stað á Íslandi árið 2013 og er stofnandi Facebook síðunnar Hrós dagsins, Hrós dagsins | Facebook. Birtist 1. mars 2024 á visir.is