Höfum gaman saman á Alþjóðadegi fjölskyldunnar

Alþjóðadagur fjölskyldunnar er haldinn hátíðlegur í dag, 15. maí, til að vekja athygli á mikilvægi fjölskyldunnar.

Fjölskyldan er grunneining samfélagsins og gegnir mikilvægu hlutverki í velferð barna, þroska þeirra og mótun. Fjölskylda veitir börnum tilfinningalegan stuðning. Börn sem alast upp í ástríkri og styðjandi fjölskyldu eru líklegri til að búa við betri andlega heilsu og tilfinningalega vellíðan. Fjölskyldan veitir börnum einnig stöðugt umhverfi þar sem þau finna fyrir öryggi og þróa með sér tilfinningu um að tilheyra. Stöðugt fjölskylduumhverfi getur hjálpað börnum við að þróa með sér heilbrigt sjálfsálit og sjálfstraust. Fjölskyldan ber auk þess ábyrgð á að innræta börnum siðferðileg gildi og siðferði. Foreldrar eru fyrstu kennarar barna og kenna þeim hvernig á að haga sér og hafa samskipti við aðra. Þau bera auk þess ábyrgð á því að veita börnum sínum tækifæri til menntunar og kenna þeim lífsleikni.

Gleðilisti fjölskyldunnar
Samvera fjölskyldunnar og góð tengsl milli fjölskyldumeðlima skipta sköpum fyrir heilsu og velferð allra fjölskyldumeðlima. Til að ýta undir gleði og hamingju, hvetja til samveru og eiga notalega stundir er mælt með að fjölskyldur útbúi sinn gleðilista með því að spyrja eftirfarandi spurninga:

  • Hvað finnst okkur gaman að gera saman?
  • Hvað fær okkur til að brosa út að eyrum og finna ánægju og gleði innra með okkur?

Út frá hugmyndum fjölskyldumeðlima er hægt að útbúa gleðilista. Þetta geta verið einföld atriði svo sem:

  • Útivera (hjóla, hlaupa, ganga, fjallganga, fjöruferð, skauta, leika í snjónum)
  • Kvöldganga með vasaljós til að skoða stjörnur og norðurljós
  • Fara í bíltúr
  • Fara saman á listsýningu eða safn
  • Spjalla við vini og ættingja
  • Teikna, mála eða föndra
  • Búa til leikrit, segja brandara eða gátur
  • Spila, púsla, baka eða elda saman
  • Fara í ratleik, feluleik eða eltingaleik
  • Taka myndir eða búa til myndbönd
  • Setja upp stöðvar á heimilinu, t.d. nuddstofu, snyrtistofu og kaffihús
  • Hlusta á góða tónlist, jafnvel dansa og syngja með
  • Rifja upp góðar minningar, t.d. með því að skoða myndir og myndbönd
  • Horfa á þátt eða mynd
  • Lesa skemmtilega bók
  • Slaka á og hlusta á hugleiðslusögu saman

Gleðilista fjölskyldunnar er mikilvægt að nota reglulega og því er best að hafa hann á áberandi stað. Hann er einföld leið til að skapa skemmtilegar samverustundir og góðar minningar. Ánægjulegar samverustundir með fjölskyldunni hafa mikið forvarnargildi varðandi félagslega, andlega og líkamlega líðan barna. Þær standa yfirleitt upp úr í minningabanka barnsins, ylja því um hjartarætur og eru fjársjóður í huga þess og hjarta.

Greinarhöfundar: Hrafnhildur Sigurðardóttir, Ingrid Kuhlman og Unnur Arna Jónsdóttir. Birtist á www.visir.is 15. maí 2023.