Að halda öðruvísi jól og áramót

Nú er ljóst að jól og áramót verða með óhefðbundnu sniði. Þrátt fyrir jákvæða þróun faraldursins undanfarið er staðan enn viðkvæm og lítið þarf út af bera til að kúrfan sveiflist upp aftur. 

Almannavarnir birtu um daginn upplýsingar um hvernig haga skuli jólunum og hvöttu landsmenn m.a. til að draga úr hópamyndun með því að versla á netinu, njóta samverustunda í netheimum og velja sér „jólavini“. Við eigum s.s. að hafa hámark 10 manns í okkar jólakúlu sem við ætlum að hitta yfir hátíðarnar. Mikilvægt er að velja í jólakúluna fólk sem við umgöngumst venjulega og láta þessar 10 manna jólakúlur ekki blandast. Það er kannski við hæfi að við ljúkum 2020, sem hefur verið krefjandi og öðruvísi ár fyrir svo margar sakir, á óhefðbundinn hátt.

Breytum því hvernig við tölum 
Það að halda öðruvísi jól og áramót þarf ekki að vera slæmt og skiptir viðhorf okkar þar miklu máli. Með því að breyta því hvernig við tölum um hlutina getum við breytt viðhorfi okkar gagnvart þeim aðstæðum sem við erum í. Í stað þess að hugsa „Sóttvarnalæknir er búinn að taka jólin af okkur landsmönnunum“, er betra að hugsa „Þessi jól verða örugglega eftirminnileg og alls ekki síðri en hefðbundin jól“.

Jákvæðar hliðar þess að halda öðruvísi jól
Hluti þess að breyta því hvernig við tölum um hlutina er að velta fyrir sér hverjar séu jákvæðar hliðar þess að halda öðruvísi jól. Að njóta gefandi samverustunda með kjarnafjölskyldunni og skapa skemmtilegar minningar? Að slaka á og endurhlaða rafhlöðurnar í stað þess að þeytast á milli búða á aðventunni? Að eyða minni peningum? Að geta verið á náttfötunum alla jólahátíðina? Að hafa loks tíma til að lesa bækur? Að hafa eitthvað til að segja barnabörnunum frá í framtíðinni? Kannski verður bara endurnærandi að brjóta upp hefðirnar sem eru svo einkennandi fyrir þennan tíma ársins.

Einblínum á hvað við getum gert
Það er líka gagnlegt að einblína á það sem við getum gert, í stað þess að vera upptekin af öllu því sem stendur okkur ekki til boða nú. Við getum til dæmis:

  • Verslað jólagjafir og mat á netinu
  • Skreytt heimilið hátt og lágt
  • Föndrað skreytingar eða kransa
  • Skipst á uppskriftum við ættingja
  • Spilað eða púslað
  • Bakað og skreytt kökur
  • Farið á rúntinn til að skoða jólaljósaskreytingar
  • Eldað saman eða pantað mat heim frá uppáhaldsveitingastaðnum
  • Tekið fyndnar fjölskyldumyndir í jólapeysum eða á náttfötunum
  • Skipulagt hitting, bingó eða pöbb kviss í netheimum
  • Horft á tónleika á netinu eða í sjónvarpinu
  • Horft á skemmtilega þáttaröð eða bíómyndir og haft kósýstund
  • Stundað útivist

Jól og áramót eru tími samveru, góðvildar og samkenndar. Það breytist ekki þó að sóttvarnareglur séu við lýði. Þetta er kjörinn tími til að skapa nýjar fjölskylduhefðir.

Ég óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar.

Greinarhöfundur: Ingrid Kuhlman. Birtist í Morgunblaðinu 21. desember 2020.