Okið undan sjálfum mér

Okið undan sjálfum mér er hreinskilinn fyrirlestur þar sem leikarinn Björgvin Franz lýsir því hvernig hann náði að breyta eigin vinnubrjálæði yfir í innri ró og raunverulega starfsánægju. Hann veltir því upp hvernig maður nær þeim árangri að verða betri starfskraftur með því að eyða færri klukkustundum í vinnunni en meiri tíma með fjölskyldu og vinum. 

Aðferðirnar sem Björgvin styðst við hafa verið notaðar til að þjálfa afreksíþróttafólk og forstjóra stærstu fyrirtækja heims til að öðlast betri árangri í sínu fagi sem og í lífinu. 

Fyrirlesari: Björgvin Franz. Hann útskrifaðist með MLS gráðu (Master of Liberal Studies) frá University of Minnesota 2015. Hann kennir meðal annars í stjórnendanámi Stjórnendafræðslunnar við Háskólann á Akureyri og hefur gert síðan 2019 ásamt Eddu Björgvinsdóttur. 

Lengd fyrirlesturs: 30 - 45 mín.