Að auka vellíðan í lífi og starfi

 

Jákvæð sálfræði er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum þáttum mannlegrar hegðunar eins og styrkleikum, vellíðan, velgengni, þakklæti, seiglu, gildum (dyggðum), von, jákvæðum tilfinningum, tilgangi, bjartsýni og hamingju. Hún veltir fyrir sér hvað einkennir einstaklinga sem ná á farsælan hátt að þroskast og aðlagast ólíkum aðstæðum í lífinu og finnur leiðir til að skapa umhverfi þar sem einstaklingur nær að blómstra og lifa sínu besta lífi.


Á námskeiðinu er farið í hvað rannsóknir á hamingju einstaklinga hafa leitt í ljós og hvernig er hægt að mæla hana. Fjallað er um gagnreyndar leiðir til að auka vellíðan. Farið er í mikilvægi þess að þekkja og efla styrkleika sína en með því aukum við líkurnar á að við blómstrum og getum lifað okkar besta lífi.


Fyrir námskeiðið taka þátttakendur VIA styrkleikaprófið.

 

Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu:

  • Hvað er jákvæð sálfræði?
  • Að þekkja styrkleika sína
  • Að mæla hamingju fólks
  • Þættir sem hafa áhrif á hamingju okkar
  • Leiðir til að auka vellíðan

Ávinningur:

  • Aukin þekking á hagnýtum leiðum til að auka vellíðan
  • Betri innsýn í eigin styrkleika
  • Aukið vægi jákvæðra tilfinninga
  • Aukin lífsgæði

Kennsluaðferðir:

  • VIA-styrkleikaprófið
  • Fyrirlestur
  • Umræður
  • Verkefni 

Lengd: Námskeiðið er 3 klst. að lengd. 

 

Leiðbeinandi: Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.


Skráning á póstlista  |    |  

thekkingarmidlun@thekkingarmidlun.is  Þekkingarmiðlun sími: 892 1987 / 892 2987 |