Móttaka nýliða og félagsmótun


Móttaka nýliða getur skipt sköpum í árangri fyrirtækja þar sem líkur á að starfsmaður hætti störfum eru mestar fyrstu mánuðina. Ef ekki er rétt staðið að móttöku nýliðans upplifir nýliðinn óöryggi og óvissu um hlutverk sitt. Vanþekking hans á starfi og vinnustaðnum leiða til hættu á mistökum og hann sýnir litla hollustu gagnvart fyrirtækinu. Rétt móttaka nýliða getur minnkað líkurnar á að starfsmenn hætti um 9%.


Starfsmenn fara í gegnum þrjú stig frá því þeir eru ráðnir. Fyrsta stigið er þegar þeir koma inn í fyrirtækið og þá er mikilvægt að skapa raunhæfar væntingar. Á öðru stiginu á sér stað félagsmótun þar sem fyrirtækið og starfsmaðurinn stilla saman væntingar. Á þriðja stiginu er starfsmaðurinn orðinn fullgildur meðlimur fyrirtækisins.


Á námskeiðinu verður móttaka nýliða rædd og helstu skref í félagsmótun einstaklinga frá því að þeir samþykkja og aðlagast vinnubrögðum og hugsun vinnustaðarins, þ.e. þeim kröfum og væntingum sem gerðar eru. Fjallað er um sálfræðilega samninginn og mismunandi væntingar starfsmanna og fyrirtækja.


Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja ná auknum árangri í móttöku nýrra starfsmanna og félagsmótun.


Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu:
  • Afleiðing lélegrar móttöku nýliða
  • Félagsmótun
  • Sálfræðilegi samningurinn
  • Þjálfun nýliða
  • Starfsfóstrakerfi
Ávinningur:
  • Ánægðari starfsmenn
  • Bætt afköst
  • Færri mistök
  • Minni starfsmannavelta
  • Minni ráðningar- og þjálfunarkostnaður
  • Betri starfsandi
Kennsluaðferðir:
  • Fyrirlestur
  • Umræður
  • Virk þátttaka

Lengd:
Námskeiðið er 3 klst. að lengd.


Leiðbeinandi:
Eyþór Eðvarðsson, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.



Skráning á póstlista  |    |  

thekkingarmidlun@thekkingarmidlun.is  Þekkingarmiðlun sími: 892 1987 / 892 2987 |