Hrós og gagnrýni
Marshall Rosenberg sem er höfundur bókarinnar um ofbeldislaus samskipti (Non-Violent Communication) setur fram mjög hagnýta leið um það hvernig eigi að gagnrýna þannig að fólk fari ekki í vörn. Aðferðin er í fimm skrefum og einföld í framkvæmd og mjög áhrifarík. Rosenberg er einnig með aðferð um það hvernig megi hrósa svo eftir því sé tekið.
Vandamálið við að hrósa er af aðeins öðrum meiði. Fólk vill fá hrós fyrir vel unnin störf en þegar viðkomandi fær hrósið þá er tilhneiging til að gera lítið úr því. Vel veitt hrós þarf því að rökstyðja og útskýra ef vel á að vera.
Af öðrum fræðimönnum sem hafa rannsakað og skrifað um þennan hluta samskipta fólks má nefna Kerry Patterson, Joseph Grenny, Ron McMillan og Al Switzler í bókinni Crucial Conversations. Þar er farið yfir það hvernig koma má í veg fyrir að fólk fari í vörn og hvernig vinna megi með það í samtölum ef fólk fer í vörn. Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja geta gagnrýnt og tjáð óánægju sína án þess að það verði óþægilegir eftirmálar.
Fræðilegur grunnur:
- Kerry Patterson, Joseph Grenny, Ron McMillan og Al Switzler. Crucial Conversations, Tools for talking when stakes are high. McGraw Hill, 2005
- Marshall Rosenberg. Non Violent Communication. Puddledancer Press, 2003
- Ofbeldislaus samskipti
- Að byggja upp traust í samtölum
- Að ræða gagnrýni án þess að fólk fari í vörn
- Að hrósa fyrir vel unnin störf
- Lipurð í samskiptum
- Læsi á varnarviðbrögð í samtölum
- Þekking á aðferðum við að gagnrýna
- Fyrirlestur
- Umræður
- Æfingar
Námskeiðið er 3 klst. að lengd.
Leiðbeinandi:
Eyþór Eðvarðsson, M.A. Vinnusálfræði, Þekkingarmiðlun ehf.