Árangursríkar stjórnunaraðferðir
Í bókinni Primal Leadership eftir Richard Boyatzis, Daniel Goleman og Annie McKee er greint frá niðurstöðum á viðamiklum rannsóknum á frammistöðu 3.870 leiðtoga um allan heiminn og hvernig þeir ná að laða fram það besta hjá sínu fólki. Niðurstöður þeirra sýna að árangursríkir leiðtogar treysta ekki á eina aðferð í stjórnun heldur beita mismunandi aðferðum, allt eftir aðstæðum. Líkja má aðferðunum við mismunandi golfkylfur þar sem golfarinn velur hentuga kylfu eftir aðstæðum. Stundum þarf hann að íhuga valið en yfirleitt velur hann án þess að velta þessu fyrir sér. Hann metur áskorunina, velur réttu kylfuna og beitir henni. Þannig ganga árangursríkir leiðtogar einnig til verks, þeir aðlaga hegðun sína að aðstæðunum hverju sinni og velja réttu aðferðina. Þannig þarf stundum að draga fram tilganginn með starfinu, stundum þarf að sýna ákveðni og í öðrum aðstæðum þarf að virkja fólk og skapa samstöðu.
Á námskeiðinu verður farið ofan í saumana á þeim sex aðferðum sem áhrifaríkir stjórnendur nota og hvenær hægt er að nýta þær. Fjórar aðferðir hafa mjög jákvæð áhrif á starfsanda en tvær hafa ekki jákvæð áhrif og í sumum tilfellum neikvæð áhrif en eru engu að síður áhrifaríkir og nauðsynlegir í vissum aðstæðum.
Um er að ræða hagnýtar aðferðir sem gagnast öllum stjórnendum sem vilja auka færni sína í stjórnun starfsmanna.
Meðal þess sem er tekið fyrir:
- Starfsandi og áhrifaþættir.
- Mismunandi leiðtogastílar.
- Færni í stjórnun
- Að lesa í aðstæður og meta nálgun
Ávinningur:
- Þekking á ólíkum aðferðum og hvenær þær henta
- Betri starfsandi
- Betra læsi á ólíkar aðferðir
- Færni í að beita ólíkum stjórnendaaðferðum
Kennsluaðferðir:
- Fyrirlestur
- Umræður
- Virk þátttaka
Lengd:
Námskeiðið er 3 klst. að lengd.
Leiðbeinandi:
Eyþór Eðvarðsson, M.A. í vinnusálfræði