Að auka vellíðan í lífi og starfi 30. mars og 4. apríl kl. 9-12

Jákvæð sálfræði er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum þáttum mannlegrar hegðunar eins og styrkleikum, vellíðan, velgengni, þakklæti, seiglu, gildum (dyggðum), von, jákvæðum tilfinningum, tilgangi, bjartsýni og hamingju. Hún veltir fyrir sér hvað einkennir einstaklinga sem ná á farsælan hátt að þroskast og aðlagast ólíkum aðstæðum í lífinu og finnur leiðir til að skapa umhverfi þar sem einstaklingur nær að blómstra og lifa sínu besta lífi.

Á námskeiðinu verður farið í hvað rannsóknir á velferð einstaklinga hafa leitt í ljós og hvernig er hægt að mæla hana. Fjallað verður um hamingjuaukandi leiðir sem eru byggðar á rannsóknum á því hvað eykur vellíðan og hamingju. Farið verður í mikilvægi þess að þekkja og efla styrkleika sína en með því aukum við líkurnar á að við blómstrum og getum lifað okkar besta lífi. Fyrir námskeiðið taka þátttakendur VIA styrkleikaprófið.


Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu:
  • Hvað er jákvæð sálfræði?
  • Að þekkja styrkleika sína
  • Að mæla hamingju fólks
  • Þættir sem hafa áhrif á hamingju okkar
  • Núvitund
  • Flæði
  • Hamingjuaukandi æfingar
Ávinningur:
  • Betri innsýn í eigin styrkleika
  • Aukin þekking á hagnýtum leiðum til að auka vellíðan
  • Aukið vægi jákvæðra tilfinninga 
  • Aukin lífsgæði

Kennsluaðferðir:
  • VIA-styrkleikaprófið
  • Fyrirlestur
  • Umræður
  • Verkefni
Lengd:
Námskeiðið er 2x3 klst. að lengd.


Leiðbeinandi: Ingrid Kuhlman, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf. 


Námskeiðsgjald: kr.44.500

Upplýsingar og skráning: thekkingarmidlun@thekkingarmidlun.is

Skráning á póstlista  |    |  

thekkingarmidlun@thekkingarmidlun.is  Þekkingarmiðlun sími: 892 1987 / 892 2987 |