PÓSTLISTI SKRÁ
Úttektir

Tilgangur úttektar er að greina ástand vinnustaðarins og leggja fram tillögur að aðgerðum til að gera vinnustaðinn enn betri en hann er.

Framkvæmd úttektar er mismunandi eftir því hvers eðlis verkefnið er. Algengt er að ráðgjafi Þekkingarmiðlunar taki einstaklingsviðtöl við alla starfsmenn, alla stjórnendur eða starfsmenn tiltekins hóps eða deildar. Þá er farið yfir stöðuna og leitað skýringa og leiða til að bæta ástandið. Í lokaskýrslu kemur fram niðurstaða úttektarinnar og hvernig best sé að bregðast við. Niðurstaðan getur verið í formi aðgerðaáætlunar. 

Í einstaklingsviðtölum er þátttakendum lofuð nafnleynd sem þýðir að hvergi er hægt að rekja skoðanir eða viðhorf einstakra starfsmanna í skýrslunni.

Úttektir eru gerðar á mismunandi sviðum:

  • Starfsandi á vinnustað: Hvernig er mórallinn og hvaða leiðir eru færar til að bæta hann?
  • Þjónusta: Hvernig er þjónustan og hvað er hægt að gera til að gera hana betri?
  • Breytingar: Hvernig miðar breytingunum og hvað þarf að gera til að láta þær ganga betur og hraðar?
  • Sameining: Hvað þarf að huga að við undirbúning og framkvæmd? Hvernig hefur sameiningin gengið?
  • Niðurstöður kannana, t.d. starfsánægju og um Fyrirtæki ársins (VR): Hvað þýða niðurstöðurnar og hvað er hægt að gera til að bæta árangurinn eða viðhalda honum?
  • Sveigjanleiki: Leiðir til að auka sveigjanleika starfsfólks og auka samhæfingu vinnu og einkalífs.


 

"Hamingjusamur einstaklingur býr ekki við ákveðnar aðstæður heldur að ákveðinni afstöðu."